Glæsilegt hótel með fallegu útsýni yfir hafið sem býður upp á góða og fjölbreytta þjónustu. Melia Madeira Mare er góður valkostur en hótelið tilheyrir hinni virtu Melia-hótelkeðju. Hótelið er vel staðsett og í einungis um 5-10 mínútna akstursfjarlægð frá miðbæ Funchal. Einn kvöldverður á hótelinu er innifalinn í uppgefnu verði.
Á hótelinu eru samtals 220 herbergi, flest með sjávarsýn og eru þau innréttuð á smekklegan en jafnframt minimalískan máta. Þau eru öll með svölum eða verönd, loftkælingu, sjónvarpi, öryggishólfi, te- og kaffivél og mini-bar. Á baðherbergjum er hárþurrka.
Sea view herbergi eru bæði með baðkari og sturtu.
Side Sea view herbergi eru einungis með baðkari.
Hér er vel hugsað um gesti og á hótelinu er meðal annars veitingastaður, bar, glæsileg heilsulind, hárgreiðslu- og snyrtistofa sem og líkamsræktaraðstaða.
Þetta er flott hótel á góðum stað sem býður gestum sínum upp á fjölbreytta þjónustu.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.