Hotel Mondo
Hótellýsing

Hotel Mondo er gott hótel staðsett í rólegu umhverfi í um 15 mínútum frá miðbæ Split. Stutt er í aðallestarstöðina í Split.

Hótelið opnaði 2007 og er því nokkuð nýlegt. Öll herbergin eru rúmgóð og innréttuð í nýtískulegum stíl. Á herbergjum má finna sjónvarp, loftkælingu, síma, mini-bar, öryggishólf og setusvæði. Á baðherbergi er hárþurrka. 

Á hótelinu er móttakan opin allan sólarhringinn og hér er morgunverðarhlaðborð á veitingastað hótelsins. Einnig er bar í anddyrinu.
Heilsulind og líkamsrækt er á hótelinu ásamt innisundlaug og gufubaði. Hér er hægt að panta tíma í nudd gegn gjaldi.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.