Hotel NH Porto Jardim er nýlegt hótel staðsett nálægt helstu stöðum Porto, líkt og Bolhao markaðnum, Aliados Avenue og hinum sögulega Ribeira svæðinu. Metro stöð er á næsta götuhorni.
Herbergin eru afar hlýleg og eru innréttuð í fallegum stíl. Þau hafa öll útsýni ýmist inn í hótelgarðinn eða yfir borgina. Herbergin eru öll búin loftkælingu, Nespresso kaffikönnu, sjónvarpi, mini-bar, öryggishólfi, síma. Á baðherbergi er hárþurrka.
Á þessu hóteli er veitingastaður sem býður upp á portúgalska rétti ásamt alþjóðlegum réttum. Morgunverðarhlaðborð er í boði.
Á þaki hótelsins er sundlaug þar sem hægt er að slaka á og njóta frábærs útsýnis yfir borgina auk þess sem líkamsrækt er á hótelinu gestum að kostnaðarlausu.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Tilvalið fyrir hópa eða pör