Hotel Oh Nice Caledonia
Hótellýsing

Hótel Oh Nice Caledonia er fallegt hótel staðsett í hjarta Costa del Sol, miðja vegu milli Estepona og Marbella. Hótelið leggur áherslu á vellíðan, slökun og góða matargerð. 

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn og er t.a.m. hægt að leigja sér reiðhjól.

Á hótelinu eru 291 björt og rúmgóð herbergi, innréttuð í miðjarðarhafsstíl. Í þeim öllum er öryggishólf (gegn gjaldi), sími, sjónvarp og útvarp. Á baðherbergi eru snyrtivörur og hárþurrka. Svalir eða verönd fylgja öllum herbergjum. Superior herbergin rúma allt að fjóra gesti og hafa þau auk þess setustofu með svefnsófa. Svíturnar eru með tvö samliggjandi herbergi, setustofu með svefnsófa og eldhús. Allt að sex manns geta dvalið í þessari einingu.

Ýmsa þjónustu er hægt að nýta sér á hótelinu, m.a. þvottaþjónustu gegn gjaldi. Auk þess er hægt að dekra við sig í heilsulindinni, fara í sauna eða bóka sér nudd, allt gegn gjaldi. Á hótelinu má einnig finna setusvæði, skrifstofuhorn og upplýsingaborð fyrir ferðamenn.

Tvo veitingastaði má finna á hótelinu, annars vegar hlaðborðsveitingastað og hins vegar a la carte veitingastað. Hlaðborðsveitingastaðurinn Sierra Bermeja framreiðir hefðbundna spænska rétti ásamt alþjóðlegum réttum. Hægt er að njóta matarins undir berum himni með útsýni yfir sundlaugina. Pergola veitingastaðurinn leggur áherslu á alþjóðlega matargerð undir andalúsískum áhrifum og er hægt að panta beint af matseðli.

Á hótelinu er auk þess bar og kaffiaðstaða.

Hótelgarðurinn er sjarmerandi með góðri sundlaug og standa sólbekkir og sólhlífar hótelgestum til afnota.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Rólegt og huggulegt hótel!