Hotel Perwanger
Hótellýsing

Hotel Perwanger er fjölskyldurekið hótel á rólegum stað á milli Siuisi og Fiè allo Sciliar, í u.þ.b. 7 mínútna akstursfjarlægð frá Seier Alm skíðalyftunni. 

Á hótelinu er veitingastaður, bar, setustofa, leikherbergi fyrir börn, líkamsræktaraðstaða, sauna og skíðageymsla. 

Rútustopp um í 200 m fjarlægð frá hótelinu. 

Herbergin eru hlýleg með viðarhúsgögnum og svölum. Í öllum herbergjum er sími, sjónvarp og hárþurrka á baðherbergi. 

Nálægar skíðalyftur: 
- Seis – Seiser Alm-skíðalyftan 3,3 km 

Frí skutlþjónusta frá hótelinu.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.