Hotel Porto Palacio Congress & SPA
Hótellýsing

Hér er um að ræða vel staðsett hótel í viðskiptahverfinu en héðan tekur um 20 mínútur í akstri að komast að Douro ánni eða í miðbæ Porto. 

Hótelið er fallegt og býður upp á góða þjónustu, en það er tilvalið fyrir hópa. 

Hér eru 251 rúmgóð og fallega innréttuð herbergi. Öll herbergin eru búin hitakatli, mini-bar (gegn gjaldi), loftkælingu, sjónvarpi og á baðherbergi eru sloppar, inniskór og hárþurrka. Hér er hægt að panta herbergisþjónustu (e. room service) gegn gjaldi. 

Á hótelinu eru tveir veitingastaðir og einn bar. Þá er hér einnig stór heilsulind þar sem er innisundlaug, nuddpottur, tyrkneskt bað, sauna og allskyns meðferðir í boði gegn auka gjaldi. Á hótelinu er einnig glæsileg aðstaða upp á þakinu með 360° útsýni yfir alla borgina. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.