Hotel Puente Real
Hótellýsing

Hótel Puente Real er fallegt hótel sem staðsett er alveg við ströndina í Torremolinos. Miðbærinn er í um 15 mínútna göngufjarlægð þar sem finna má fjölbreytta flóru veitingastaða, verslana og bara. Á þessu hóteli er einungis í boði að taka allt innifalið þjónustu.

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn.

Herbergin eru stílhrein og fallega innréttuð. Í þeim öllum má finna loftkælingu, öryggishólf (gegn gjaldi), síma, ísskáp og sjónvarp. Inni á baðherbergjum er hárþurrka og fylgja svalir eða verönd öllum herbergjum. Superior herbergin eru aukalega með sjávarsýn og eru staðsett í aðalbyggingu hótelsins. Ókeypis vatns- og vínflaska fylgir auk þess inni á þeim herbergjum við komu og einnig er í boði að skrá sig út síðar en hefðbundinn tími segir til um. Þetta er þó háð framboði hverju sinni.

Mikil afþreying er í boði á hótelinu sem hótelgestir geta nýtt sér. Hægt er að spila borðtennis, tennis, vatnapóló og stunda eróbikk og líkamsrækt svo fátt eitt sé nefnt. Skemmtidagskrá er í boði alla daga og öll kvöld, jafnt fyrir börn sem fullorðna. Krakkaklúbbur er auk þess starfræktur fyrir börn frá 4–12 ára.

Þar sem þetta er allt innifalið hótel þýðir það að gestir geta gengið að morgunverðar- hádegis- og kvöldverðarhlaðborði alla daga á hlaðborðsveitingastað hótelsins. Eldað er fyrir opnum tjöldum og eru þemakvöld nokkrum sinnum í viku. Innlendir drykkir fylgja auk þess frítt með. Snarl á milli mála, sem og ís er í boði á ákveðnum tímum dagsins. Hótelgestir fá 40% afslátt séu innfluttir drykkir keyptir á hótelinu. Á hótelinu má einnig finna ítalskan A la carte veitingastað, sundlaugarbar, setustofubar og kaffiteríu þar sem hægt er að kaupa ýmsa rétti af matseðli ásamt úrvali kokteila og annarra drykkja.

Garðurinn er stór og fallegur með tveimur góðum sundlaugum ásamt einni barnalaug. Gróður og fjölnota íþróttavellir eru allt um kring og geta gestir sólað sig víða í garðinum á þar til gerðum sólbekkjum. Einnig er hægt að nýta sér handklæðaþjónustu í sundlaugargarðinum gegn gjaldi.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Þetta hótel er tilvalið fyrir fjölskyldur!