Hotel Rodes
Hótellýsing

Hotel Rodes er einfalt hótel staðsett u.þ.b. 800 m frá miðbæ Ortisei. Hótelið bíður upp á rútuferðir inn í miðbæ Ortisei. Rútustopp í 20 m fjarlægð frá hótelinu.

Gestamóttakan er opin milli 08:00-20:00. Á hótelinu er veitingastaður, bar, innisundlaug, gufubað, sauna og  skíðageymsla. 

Herbergin eru einföld með teppalögðum gólfum. Á herbergjunum eru sími, sjónvarp, öryggishólf og hárþurrka á baðherbergi. 

Nálægar skíðalyftur: 
- St. Ulrich-Seiser Alm-skíðalyftan 1,1 km 
- St. Ulrich-Raschotz 1,4 km
- Ortisei-Furnes-skíðalyftan 1,5 km

Skutlþjónusta á vegum hótelsins að Ortisei skíðalyftunum. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.