Hotel Sandy Suites
Hótellýsing

Sandy Suites er þriggja stjörnu íbúðahótel staðsett um 200 metra frá lítilli strönd. Miðbær Kalamaki er í 150 m fjarlægð en þar er hægt að sækja alla þjónustu svo sem veitingahús, verslanir og kaffihús. Gangan þangað tekur um 10 mínútur. Vinsamlegast athugið að ganga þarf upp og niður brekku til að komast á aðalgötuna. 

Hótelið er snyrtilegt en einfalt á tveimur hæðum en þar er ekki lyfta.  Íbúðirnar eru ýmist stúdíó, íbúðir með einu svefnherbergi sem rúma þrjá aðila og íbúðir sem rúma fjóra aðila. Í eldhúsi er ísskápur og eldunaraðstaða, en ekki ofn eða örbylgjuofn. Íbúðirnar eru þrifnar um 5x í viku og skipt á rúmum og handklæðum 2x í viku. 
Loftkæling á herbergjum fæst gegn auka gjaldi.

Þráðlaust net er í almennum rýmum og á íbúðum.  

Skemmtileg útisundlaug og barnalaug.  

Vinsamlegast takið eftir að það eru svo þröngar götur við hótelið að því miður komast stærri rúturnar ekki þangað og því fara farþegar ekki í rútum með fararstjórum en eru keyrðir með leigubíl eða minni rútum svo ekki þurfi að ganga langa vegalengd með töskur.  

Sandy Suites er hagkvæmt og einfalt íbúðarhótel