Hotel Senator Marbella Spa
Hótellýsing

Hótel Senator Marbella Spa er vel staðsett hótel í Marbella, en veitingastaði, bari og verslanir má finna allt um kring. Það tekur einungis um fimm mínútur að ganga niður á ströndina.

Herbergin eru fallega innréttuð og vel búin helstu nauðsynjum. Í þeim öllum má finna loftkælingu, síma, sjónvarp, öryggishólf (gegn gjaldi), viftu, leslampa, mini-bar og kaffi/te aðstöðu. Vert er að taka fram að allir gluggar eru hljóðeinangrandi. Hárþurrka er á baðherbergjum ásamt baðkari með sturtu. Svalir eða verönd fylgja öllum herbergjum.  Superior herbergin eru með hliðarsjávarsýn og fylgir auk þess baðsloppur með þeim herbergjum.

Glæsileg heilsulind er á hótelinu en þar er m.a. stór inni sundlaug. Hægt er að bóka margs konar líkams- og dekurmeðferðir ásamt slökunarnuddi, gegn gjaldi. Einnig er líkamsræktaraðstaða fyrir hendi á hótelinu.

Hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu þar sem framreiddir eru spænskir og alþjóðlegir réttir, ásamt veglegu morgunverðarhlaðborði alla daga. 

Ath. karlmönnum ber skylda til að klæðast síðbuxum þegar snætt er á kvöldin á veitingastaðnum.

Á hótelinu eru auk þess tveir barir þar sem hægt er að panta sér snarl og ýmsa drykki.

Sundlaug hótelsins er staðsett utandyra á efstu hæð hótelsins, en þar er einnig nuddpottur. Sólbekkir og sólhlífar eru í boði fyrir hótelgesti ásamt leigu á handklæðum gegn tryggingargjaldi sem fæst endurgreitt. Greiða þarf svo aukalega 1 evru í hvert sinn sem skipt er út handklæði og fæst það endurgreitt að auki við lok dvalar.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Gott hótel með glæsilegri heilsulind!