Hotel SPA Benalmadena Palace
Hótellýsing

Hér er um að ræða vinsælt og fjölskylduvænt hótel, staðsett í stuttu göngufæri við ströndina í Benalmadena. Hótelið býður einnig upp á skutlþjónustu til og frá ströndinni. 

Hótelið opnaði 2004 og býður upp á fjölbreytta og góða þjónustu fyrir allan aldur. Hér eru 148 íbúðir og 34 stúdíó íbúðir. Móttakan er opin allan sólarhringinn. 

Allar íbúðirnar eru rúmgóðar og bjartar með svölum eða verönd. Íbúðirnar eru vel búnar helstu þægindum og eru með eldhúsaðstöðu með litlum ísskáp, örbylgjuofni og lítilli eldunaraðstöðu. Þá er hér einnig borðstofuborð með stól, sjónvarp, sími, svefnsófi (ekki í stúdíó), loftkæling og öryggishólf og á baðherbergi er hárþurrka. Íbúðirnar (ekki stúdíó) eru um 42fm. 

Á hótelinu má finna veitingastað, snarl-bar, kaffihús, bar, líkamsræktaraðstöðu, sjálfsafgreiðslu þvottaaðstöðu, heilsulind, barnaklúbb (fyrir 4-12 ára), unglingaklúbbur (fyrir 14 ára og eldri), leikherbergi (e. game room), bíósal, leikvöll fyrir þau yngstu og svæði til íþróttaiðkunar. Á kvöldin er mini-disco fyrir börnin og þrjú kvöld vikunnar er lifandi tónlist.

Í heilsulindinni eru allir velkomnir en hér er meðal annars að finna innilaug, sauna, nuddpott og Tyrkneskt bað.

Í garðinum er að finna stóra sundlaug fyrir fullorðna og aðra minni fyrir börn. Laugarnar eru saltvatnslaugar. Hægt er að fá sundlaugarhandklæði í móttöku hótelsins, gegn tryggingargjaldi. Í garðinum eru sólbekkir og sólhlífar. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.