Hotel Tropis
Hótellýsing

Hotel Tropis er 115 herbergja, staðsett í um 350 metra fjarlægð frá miðbæ Tropea og Dómkirkju hinnar heilögu Maríu. Um 50 mínútna aksturfjarlægð er frá flugvellinum.

Hótelið er vel staðsett upp í smá hlíð fyrir ofan miðbæinn og þaðan er fallegt útsýni yfir bæinn. Á hótelinu eru 2 sundlaugar, líkamsrækt og heilsulind. Í heilsulindinni er hægt að panta tíma í fjölda andlits og líkamsmeðferða gegn gjaldi.
Veitingastaður er á hótelinu þar sem morgunverðarhlaðborðið fer fram ásamt því að hægt er að njóta góðs matar á kvöldin. Snack-bar er við sundlaugina. 

Herbergin eru rúmgóð og hlýlega innréttuð. Í öllum herbergjum eru loftkæling, sjónvarp, öryggishólf, mini-bar og á baðherbergi er hárþurrka.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.