Hotel Valeria Dar Atlas
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt hótel sem staðsett er í Palmeraie hverfinu í Marrakech. Um 20 mínútna akstursfjarlægð er frá flugvellinum og 15 mínútna akstursfjarlægð frá miðborg Marrakech. 

Á hótelinu er sannkölluð Marokkósk gestrisni og umhverfis hótelið er mikill gróður í fallegum og stórum garði, frá hótelinu er útsýni yfir Atlas fjallgarðinn.

Herbergin eru falleg og í hefðbundnum marokkóskum stíl. Þau eru rúmgóð og öll eru búin loftkælingu, síma, sjónvarpi, sjónvarpi, mini-bar og svölum eða verönd. Sturta er inn á herbergjunum og er sér rými fyrir salerni. Öryggishólf er hægt að fá gegn gjaldi. 

Á hótelinu eru fimm veitingastaðir og fjórir barir. Hér er garðurinn stór og gróðurmikill með upphitaðri sundlaug, inni sundlaug og sundlaugarbar. Einnig má hér finna næturklúbb, heilsulind, góða líkamsræktaraðstöðu þar sem hægt er að fara í allskyns hóptíma (fyrir fram bókanir á hótelinu) tennis-, fótbolta- og körfuboltavöll. Hárgreiðslustofa er á svæðinu og vatnsrennibrautagarður er við hlið hótelsins.

Hótelið er einnig gott fyrir fjölskyldur en það er starfræktur barnaklúbbur fyrir 4-12 ára og unglingaklúbbur. Í barnaklúbbnum er í boði allskyns afþreying meðal annars íþróttaiðkun, mini diskó, föndur, vatnaleikir og fl. Unglingaklúbburinn býður meðal annars upp á tölvuleiki, myndbandagerð og afslöppunarsvæði.
Einnig er í boði fyrir foreldra og börn að sækja ýmsa tíma saman, meðan annars leiklistartíma, danstíma, matargerð og íþróttaiðkun.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.