Hotel Veronica
Hótellýsing

Hotel Veronica er einfalt en gott 3* stjörnu íbúðahótel um það bil 200 metra frá Agii Apostoli ströndinni og um 4 km frá Chania. Strætisvagn sem gengur til Chania stoppar nálægt hótelinu. Í næsta nágrenni er ýmis þjónusta í boði en þar er að finna hraðbanka, matvörubúð, apótek, veitingastaði og kaffihús.

Á hótelinu eru íbúðir með einu svefnherbergi með svölum eða verönd. Íbúðirnar eru loftkældar (loftkæling er staðsett í stofu) með eldhúskrók, ísskáp og eldunaraðstöðu. Baðherbergin eru með baðkari. 

Wi-Fi á hótelinu er gegn gjaldi.

Garðurinn er ekki mjög stór en er vel búinn góðum sólbekkjum og sólhlífum og einnig er stór sundlaug með barnalaug. Þá er hér einnig snakkbar sem er opinn yfir daginn.

Gott og hagkvæmt íbúðahótel með góðri staðsetningu