Hotel Villa Antica
Hótellýsing

Hotel Villa Antica er staðsett í miðbæ Tropea umlukt garði með stórri verönd þar sem eru stólar og borð ásamt klassískum ítölskum styttum. Ekta ítalskur antíkstíll er á hótelinu. Stutt ganga er að lestarstöðinni og að Piazza Ercole torginu. Veitingastaðir, verslanir og barir eru í næsta nágreni. Hótelið er í um 50 mínútna aksturfjarlægð frá flugvellinum.

Móttakan er opin allan sólarhringinn þar sem hægt er að leigja hjól gegn gjaldi. Hér er í boði morgunverðarhlaðborð.

Herbergin eru rúmgóð og hlýlega innréttuð með málverkum á veggjum. Í öllum herbergjum eru loftkæling, sjónvarp, öryggishólf, mini-bar og á baðherbergi er hárþurrka.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.