Hotel Villa Emilia er notalegt fjölskyldurekið hótel vel staðsett í Ortisei. Á hótelinu er hefðbundinn veitingastaður sem býður uppá morgun- og/eða kvöldverð. Hótelið samanstendur af 2 byggingum sem eru aðskildar með litlum húsgarði. Herbergin er átælega rúmgóð og rúma tvo eða þrjá fullorðna eða tvo fullorðna og tvö börn.
Fjölskyldurekið hótel aðeins í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá öllum staðbundum þægindum og kláfferjum. Skíðasvæðið er í 400 metra fjarlægð frá hótelinu. Hótelið fær góð ummæli gesta sinna fyrir þjónustu og mat.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.