Hyatt Place Taghazout 5*
Hótellýsing

Hér er fallegt hótel staðsett í Taghazout. Bærinn er staðsettur í 16 km fjarlægð frá Agadir. Svæðið er þekkt fyrir einstaka strönd og þar er sjósport mikið stundað og svæðið mjög vinsælt fyrir sjóbrettaiðkun. Hótelið er staðsett ofarlega í bænum í um það bil fimm mínútna aksturfjarlægð frá ströndinni. Hótelið er staðsett 500 metra frá Taghazout golfvellinum sem eru 27 holu völlur.   

Allur aðbúnaður á hótelinu er góður enda hótelið nýlegt. Alls eru 152 herbergi á þessi hóteli, 10 svítur og 20 villur. 

Herbergin eru rúmgóð, hlýleg og innréttuð í nútímalegum stíl. Öll eru þau búin sjónvarpi, kaffi- og te aðstöðu, litlum ísskáp, öryggishólfi og svölum eða verönd. Á baðherbergi er hárþurrka. Hægt er að bóka herbergi með sjávarsýn gegn auka gjaldi. 

Hér er góður garður með tveimur sundlaugum. Þar er líka góð líkamsræktaraðstaða og heilsurækt. Á hótelinu er veitingastaður og skemmtilegur kokteilabar þar sem notalegt er að sitja og horfa á einstakt sólarlagið. Einnig er skemmtidagskrá á hótelinu, barnaklúbbur og borðstennisborð.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.