Hyatt Regency Taghazout
Hótellýsing

Hér er um að ræða glæsilegt hótel, staðsett alveg við ströndina í Taghazout. Bærinn er staðsettur í 16 km fjarlægð frá Agadir. Svæðið er þekkt fyrir einstaka strönd og þar er sjósport mikið stundað og svæðið mjög vinsælt fyrir sjóbrettaiðkun. Svæðið í kringum hótelið er rólegt og notalegt og er í mikilli uppbyggingu. 27 holu golfvöllur er staðsettur nálægt hótelinu. 

Á hótelinu eru 190 herbergi, öll nútímalega innréttuð. Herbergin eru rúmgóð og öll með stórum svölum eða verönd. Þar er loftkæling, sjónvarp, öryggishólf, mini-bar, ísskápur og kaffi- og te aðstaða og gott baðherbergi með hárþurrku, sloppum og inniskóm. 

Hér eru þrír veitingastaðir, en á þeim er mjög góð þjónusta og gestir hótelsins gefa hótelinu háa einkunn fyrir matseðil hótelsins. Þá er hér einnig glæsileg og góð heilsulind og líkamsræktaraðstaða. 

Garðurinn er fallegur og góð aðstaða er fyrir hótelgesti. Tvær sundlaugar eru í garðinum. Í garðinum er skemmtidagskrá fyrir börn og fullorðna og fyrir þá sem vilja stunda Yoga og Pilates eða jafnvel einhver sjósport þá er úr nægu að velja. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Glæsilegt hótel alveg við strönd