Iberostar Waves Club Palmearie
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt hótel sem býður upp á allt innifalið þjónustu, staðsett í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá miðbæ Marrakech. Frá hótelinu er hægt að taka strætó án gjalds í miðbæinn. 

Herbergin eru fallega innréttuð í nútímalegum stíl. Öll eru rúmgóð með loftkælingu, síma, mini-bar (gegn auka gjaldi), sjónvarpi, öryggishólfi og á baðherbergi er sturta og hárþurrka. 

Á hótelinu er móttakan opin allan sólarhringinn og þá er hér einnig að finna þrjá veitingastaði, bar, heilsulind, líkamsræktaraðstöðu, hárgreiðslustofu og barnaklúbb fyrir þau yngstu. 

Hótelið er með ýmsa íþróttatengda þjónustu í boði eins og blak, tennis, badminton, fótboltavöll, golf, körfuboltavöll, bogfimi, spinning, píla, borðtennis og billiard. 

Hér er sundlaugargarður sundlaug, barnalaug, sólhlífum, sólbekkjum og sundlaugarbar. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.