Ibersol Torremolinos Beach
Hótellýsing

Ibersol Torremolinos Beach er nýlega endurgert og vel staðsett hótel í grennd við Bajondillo ströndina. Á þessu hóteli er m.a. hægt að fá „allt innifalið“ þjónustu. Hér geta bæði pör og fjölskyldur notið sín vel.

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn.

Herbergin eru stílhrein, nútímaleg og fallega innréttuð ásamt því að vera öll með hliðarsjávarsýn. Þau eru rúmgóð og vel búin helstu þægindum, t.d. loftkælingu, sjónvarpi, öryggishólfi (gegn gjaldi), katli, síma og ísskáp. Hárþurrka er á baðherbergjum og baðkar með sturtu. Svalir eða verönd fylgja auk þess öllum herbergjum.

Mikil og góð skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa er í boði daglega á hótelinu.

Góður hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu þar sem boðið er upp á morgun- og kvöldverðarhlaðborð. Einnig má finna á la carte veitingastað, Lido, sem sérhæfir sig í matseld Miðjarðarhafsins ásamt innlendum og alþjóðlegum réttum. Tveir barir eru auk þess á hótelinu, þarf af sundlugarbar sem býður upp á ýmsa drykki.

Hótelgarðurinn er stór og fallegur. Þar er að finna þrjár sundlaugar, þar af eina barnalaug og buslusvæði fyrir yngstu börnin. Gott svæði með sólbekkjum og hengirúmum standa hótelgestum til boða og er hægt að nýta sér handklæðaþjónustu gegn gjaldi en reiða þarf einnig fram tryggingargjald.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Fjölskylduvænt og vel staðsett hótel!