Indigo Mare
Hótellýsing

Indigo Mare er notalegt íbúðarhótel sem er staðsett niður við fallega ströndina í Platanias þar sem er tilvalið að slaka á en einnig stutt í mismunandi vatnaíþróttir fyrir þá sem vilja meira fjör. Á svæðinu er að finna mikið af góðum veitingastöðum, kaffihús, strandbari, næturklúbba, fjölbreyttar verslanir og afþreyingu. 

Á hótelinu eru 88 íbúðir og stúíóíbúðir sem eru í eldri stíl en mjög snyrtilegar og rúmgóðar. Íbúðirnar eru allar með svalir eða verönd, eldhúskrók og kæliskáp, sjónvarpi, loftkælingu og öryggishólfi (gegn gjaldi). Baðherbergið er með baðkari eða sturtu og hárþurrku. 

Hótelið er með góðan en lítinn sundlaugargarð en þar er að finna eina sundlaug og eina barnalaug og er gengið beint úr sundlaugargarðinum út á ströndina. Umhverfis laugarnar er sólbaðsaðstaða með sólbekkjum og sólhlífum. Við sundlaugina er sundlaugarbar en þar er hægt að fá léttar veitingar, heitan mat og úrval drykkja, einnig er hægt að fá barnamatseðil og barnastóla fyrir yngstu gestina. Veitingastaðurinn sem er á fallegri verönd við sundlaugina býður upp á hlaðborðsveitingar með mjög góðu úrvali af innlendum og alþjóðlegum mat. Leiksvæði fyrir börnin og ungbarnaherbergi er á hótelinu ásamt því að hér er leikherbergi þar sem hægt er að fara í billiard og borðtennis. Þá er einnig hægt að fara í gufubað (sauna). Á ströndinni er jafnframt að finna einkasvæði fyrir gesti hótelsins en þar er hægt að leigja sólbekki og sólhlífar og þar er einnig sturta. Þar er yndislegt að sleikja sólina og baða sig í hlýjum sjónum. 

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.

Hér er eitthvað við hæfi fyrir alla bæði á og við hótelið hvort sem fólk kýs slökun við ströndina eða líflegt næturlíf. Mjög stutt er að miðbæ Platanias og við aðalgötuna er að finna strætisvagna sem ganga inn til Chania sem er í um 12 km fjarlægð.