Inea Hotel & Suites
Hótellýsing

100 metrar frá ströndinni!

Inea hotel and Suites er eins og nafnið gefur til kynna samansett af herbergjum og svítum. Hótelið er vel staðsett fyrir þá sem vilja skiptast á að vera við sundlaugina en kíkja líka á ströndina. 

Móttakan er opin allan sólarhringinn en þar er m.a. upplýsingaborð sem veitir ýmsa þjónustu. Á hótelinu er skemmtidagskrá alla daga.

Sundlaugarsvæðið er notalegt og sundlaugin sjálf með grunnu svæði fyrir minni börnin, sólbaðsverönd er allan hringinn en þar eru sólbekkir, sólhlífar og sundlaugarbar svo allir geta notið sín saman hvort sem það er í sólinni, leikandi sér í sundlauginni eða í skugganum undir sólhlíf eða við sundlaugarbarinn. 

Herbergin eru innréttuð í einföldum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, sjónvarpi, svölum eða verönd. Í öllum íbúðum er ísskápur. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Vinalegt hótel!