Inea Sole Hotel
Hótellýsing

Hér er um að ræða gott hótel sem staðsett er 150 metra frá ströndinni í bænum Chania. Um 1 km er frá hótelinu að Fransiscan klaustrinu. Móttakan er opin allan sólarhringinn en þar er m.a. upplýsingaborð sem veitir ýmsa þjónustu.

Herbergin eru innréttuð í einföldum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, sjónvarpi, hárblásara öryggishólfi, kaffiaðstöðu og svölum. 

Sundlaugin í garðinum er umkringd sólbekkjum ásamt góðum sundlaugabar sem opinn er á kvöldin. Líkamsrækt er á hótelinu.

Á hótelinu er einnig veitingastaður og bar sem veitir herbergisþjónustu (gegn gjaldi), þjónustu við sundlaugina eða á staðnum.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu gegn gjaldi, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.