Jaz Fanara
Hótellýsing

Allt innifalið
Hotel Jaz Fanara er 5 stjörnu hótel vel staðsett við ströndina  og stutt frá miðbænum í Sharm el Sheikh. Hótelið stendur alveg við sjóinn með glæsilegu útsýni yfir Rauða hafið.   Mjög góður garður með þremur sundlaugum ásamt barnalaug.  Skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa og gott leiksvæði fyrir börn.  Hægt er að leigja búnað til köfnar beint af hótelinu.  Líkamsræktarstöð og heilsurækt.
Herbergin eru staðsett í lágreistum byggingum sem raðast í kringum sundlaug hótelsins.
Morgun- hádegis og kvöldverður er í boði á El Medina, hlaðborðsveitingastað hótelsins.  Þá er snakkbar við sunlaugarnar og notalegur bar í gestamóttöku.  Hótelið rekur skemmilegan bar á ströndinni.
Einnig er á hótelinu ítalskur a la Carté veitingastaður sem eingöngu er opinn fyrir kvöldverð. Gestir hótelsins þurfa að panta borð með fyrirvara og greiða þarf aukagjald.

Herbergin eru hlýlega innréttuð og  rúmgóð.  Þau eru vel búin helstu þægindum, sjónvarp, öryggishólf, kaffi- og te-bakki og minibar. Hárþurrka á baðherbergjum. Öll herbergi eru með svölum eða verönd.   Hægt er að kaupa herbergi sem eru með útsýni út að sjó. Einnig er hægt að fá þríbýli eða fjölskylduherbergi sem tekur allt að fjóra.


Fallegt hótel, frábærlega staðsett,örstutt frá miðbænum í Sharm el Sheikh.