Jaz Mirabel Park & Club
Hótellýsing

Allit innifalið

Jaz Mirabel Park & Club er gott fjölskylduvænt hótel staðsett við ströndina í Sharm el Sheikh.  Hótelið er staðsett við hlið Jaz MIrabel Park en bæði hótel hafa aðgang að ströndinni fyrir framan. Þar er afmarkað svæði sem eingöngu er fyrir hótelgesti.  Stór og góður hótelgarður með tveimur sundlaugum ásamt barnalaug. Þá er ein sundlaug til viðbótar en þar eru fimm rennibrautir. Á hótelinu er starfandi barnaklúbbur og í boði er fjölbreytt skemmtidagskrá flest kvöld vikunnar.
Heilsurækt og innisundlaug og líkamsræktarsalur.  Snyrtistofa.

Herbergin eru rúmgóð og hlýlega innréttuð, öll með svölum eða verönd og snúa út að sundlaug.  Hægt er að fá fjölskylduherbergi.  Herbergin eru með sjónvarpi, öryggishólfi, minibar og loftkælingu.

La Fattoria er aðal veitingastaður hótelsins. Þar er morgun- hádegis- og kvöldverður í boði af hlaðborði.  Einnig er á hótelinu asískur og ítalskur veitingastaðir þar sem boðið er uppá veitinga af matseðli.
 

Mjög fallegt fjölskylduvænt hótel, vel staðsett með beinu aðgengi að strönd.


Ath: Gestir á Jaz Mirabel Park & Club skrá sig inn á hótelið í gestamóttöku Jaz Mirabel Beach. Hótelið standa hlið við hlið.