Kennedy Hospitality Resort
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt hótel staðsett í Hivernage hverfinu, stutt frá Kenzi Rose Garden og í stuttu göngufæri frá miðbæ Marrakech. 

Hótelið er fallega innréttað og er með 187 herbergi. Hótelið er umvafið fallegum garði og býður góða þjónustu.

Öll herbergi eru búin sjónvarpi, síma, öryggishólfi (gegn gjaldi), skrifborði, mini-bar/litlum ísskáp (gegn gjaldi) og loftkælingu. Einnig eru svalir á herbergjum og hárþurrka á baðherbergi. Hægt er að óska eftir samliggjandi herbergjum með hurð á milli en það er háð framboði hverju sinni. 

Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður og tveir aðrir veitingastaðir. Einnig er hér snarlbar, píanóbar og sundlaug.   

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.