Kenzi Club Menara Palace & Resort
Hótellýsing

Hér erum að ræða glæsilegt hótel, staðsett í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá El Fna Jemaa torginu. 

Hótelið býður upp á góða og fjölbreytta þjónustu í fallegu resort umhverfi. 

Hér eru um 236 herbergi og svítur. Öll eru rúmgóð og fallega innréttuð með öryggishólfi, sjónvarpi, skrifborði, litlum ísskáp, síma, kaffivél, loftkælingu og svölum. Á baðherbergi er ýmist baðkar eða sturta og hárþurrka. Hægt er að panta herbergisþjónustu (e. room service) gegn auka gjaldi. 

Á hótelinu er móttakan opin allan sólarhringinn og þá er hér einnig að finna þrjá veitingastaði, bar, heilsulind, líkamsræktaraðstaða, . 

Hér er stór sundlaugargarður með einni sundlaug, sólhlífum og sólbekkjum og sundlaugarbar. 

Hótelið býður einnig upp á barnapössun (gegn gjaldi), litlar verslanir, þvottaþjónustu (gegn gjaldi) og barnaklúbb. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.