Kenzi Europa
Hótellýsing

Hér er um að ræða sérlega vel staðsett í Agadir. Ströndin er einungis í um 100 metra fjarlægð og miðbærinn rétt í um 300 metra fjarlægð. Þá er hótelið afar vel rekið og mikið lagt upp úr því að fjölskyldunni líði sem best í fríinu sínu.

Hótelið er komið til ára sinna en þjónustan og maturinn hér er til fyrirmyndar.

Á hótelinu eru 236 snyrtilega hönnuð og rúmgóð herbergi. Öll herbergin eru búin loftkælingu, litlum svölum, sjónvarpi, síma, mini-bar, öryggishólfi (hægt að setja fartölvu í hólfin) og á baðherbergi er hárþurrka, baðsloppar, baðkar og sturta. Herbergin eru ýmist með garðsýn eða sjávarsýn í fjarska.

Hér er hlaðborðsveitingastaður og enskur „pöbb“ ásamt snarlbar og bar. Þá er hér líkamsræktaraðstaða og heilsulind, lítil verslun og skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa. 

Hér er fallegur garður með sundlaug og fjórum vatnsrennibrautum.  Í garðinum eru einnig sólbekkir, snarlbar og tennisvöllur. Hér er starfræktur barnaklúbbur og skemmtidagskrá er í gangi flesta daga og kvöld, fyrir alla aldurshópa.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.