Kenzi Rose Garden
Hótellýsing

Kenzi Rose Garden er gott hótel, staðsett í hjarta L‘Hivernage hverfisins, í um það bil tveggja kílómetra fjarlægð frá Jamaâ El Fna torginu og le Souk markaðnum. 

Hótelið opnaði aftur eftir algjöra endurnýjun árið 2019

Hótelið leggur mikið upp úr lúxus og þægindum fyrir sína viðskiptavini. 

Hér eru 384 herbergi, öll rúmgóð og nýtískulega hönnuð en sjálft hótelið er hannað í Art deco stíl. Í öllum herbergjum er loftkæling, mini-bar, öryggishólf, sjónvarp, sími og á baðherbergi má finna hárþurrku.

Á hótelinu er fallegur sundlaugargarður með tveimur sundlaugum og íþróttasvæði fyrir mini fótbolta, blak og tennis. Hér má einnig finna inni sundlaug, keilusvæði, bar, borðtennisborð, leiksvæði fyrir börn, líkamsræktaraðstöðu, heilsulind þar sem hægt er að nýta sér allskyns líkamsmeðferðir eins og tyrknesk böð, heitan pott og sauna (gegn gjaldi). 

Hér er einn hlaðborðsveitingastaður og tveir aðrir veitingastaðir, einn sem sérhæfir sig í Mediterranean réttum og hinn í marrókóskum réttum. Á þessu hóteli er hægt að velja um að fá morgunverð, hálft fæði eða allt innifalið.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Hótelið hentar vel fyrir einstaklinga og hópa