Kiwi Apartments
Hótellýsing

Góður gistivalkostur á Agioi Apostoloi svæðinu og stuttur gangur er niður að strönd. Aðeins eru um 3km inn til miðæjar Chania og stopar almennings strætó stoppar beint fyrir utan hótelið. Matvöruverslun er í göngufæri ásamt fjölmörgum veitingastöðum, bakarí og annarri þjónstu. 

Íbúðarhótelið hentar bæði fjölskyldum og þeim sem eru að leita að rólegheitum í fríinu sínu. Sundlaugargarðurinn er ekki stór en þó með sólbaðsverönd, sólbekkjum og barnalaug ásamt leikaðstöðu fyrir börnin. Einnig er sundlaugarbar sem hægt er að fá drykki og létta rétti gegn gjaldi.

Íbúðirnar eru innréttaðar í björtum og notalegum stíl og eru allar íbúðir með eldhúskrók ásamt kaffivél, hraðsuðukatli og ísskáp. Svalir eða verönd eru á öllum íbúðum ásamt loftkælingu og öryggishólfi.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Róleg staðsetning í gróðursældu umhverfi!