Einföld gisting
Koukouras er mjög einföld 2 stjörnu íbúðargisting. Það er vel staðsett , stutt ganga að ströndinni í Kato Stalos og er í um rúma 7 km fjarlægð frá Chania.
Útisundlaug er í garðinum og er sundlaugarbar á svæðinu líka.
Heimsferðir bjóða upp á stúdíó, 1 herbergja íbúðir og 2 herbergja íbúðir.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.