KR Hotel Albufeira Lounge
Hótellýsing

KR Hotel Albufeira Lounge er lítið og notalegt hótel staðsett í kílómetra fjarlægð frá gamla miðbænum í Albufeira.  

Frá hótelinu eru um 10 mínútna gangur á næstu sandströnd og 10 mín gangur að “The strip" sem er aðalgatan á Oura svæðinu. Einnig er um 20 mín gangur niður að rúllustiganum til að fara í gamla bæinn.

Herbergin eru innréttuð í einföldum en nýlegum stíl með sjónvarpi, litlum ísskáp, loftkælingu og öryggishólfi (gegn gjaldi). Á baðherbergi er hárþurrka.

Á hótelinu er góð en lítil sundlaug og einnig er lítill bar og kaffihús. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Notalegt hótel fyrir pör