La Barracuda
Hótellýsing

Hotel La Barracuda er afar vel staðsett hótel, beint fyrir framan ströndina í Torremolinos. Veitingastaðir og verslanir eru í göngufæri við hótelið.

Herbergin eru einföld og stílhrein en inni á þeim öllum er sjónvarp, loftkæling, ísskápur, sími og baðherbergi með baðkari. Svalir eða verönd, með stólum og borði fylgja öllum herbergjum. Hægt er að fá barnarúm inn á herbergið án aukagjalds. Einnig er hægt að leigja hraðsuðuketil gegn gjaldi. Að auki er hægt er að leigja öryggishólf gegn gjaldi.

Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður og sundlaugarbar, ásamt bar inni á setusvæði hótelsins þar sem kvöldskemmtanir fara fram. Við sundlaugarbarinn á sumrin er einnig boðið upp á grillhlaðborð í hádeginu þar sem gestir geta keypt ýmsar girnilegar grillaðar kræsingar.

Lítil gjafabúð er á hótelinu sem selur minjagripi og helstu nauðsynjar. Í móttökunni er auk þess hægt að leigja bíl, mótorhjól eða reiðhjól.

Stór sundlaug er við hótelið ásamt góðri verönd með sólbekkjum og sólhlífum þar sem hægt er að slaka á, e.t.v. með góða bók við hönd. Á daginn er boðið upp á ýmsa afþreyingu í garðinum, t.d. vatnsleikfimi, sundlaugarbingó, sundblak, mini-diskó og margt fleira. Á háannatíma er auk þess mikið fjör við sundlaugarbarinn á kvöldin, annars fer skemmtunin fram innandyra við hótelbarinn, en þar er dansgólf svo hægt er að stíga nokkur létt spor ef sá gállinn er á manni. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma. 

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Einkar vel staðsett hótel í Torremolinos!