Labranda Reveron Plaza
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt hótel staðsett nálægt ströndinni og smábátahöfninni í Los Cristianos. Hótelið er innréttað í klassískum spænskum stíl og er eitt af fyrstu hótelunum sem var byggt á suðurhluta eyjunnar. Staðsetningin er skemmtileg í líflegu umhverfi við gamla bæinn. 

Herbergin eru skrautlega innréttuð og eru um 30 fm. Öll herbergin hafa loftkælingu, sjónvarp, mini-bar, hitaketil við kaffi- og te aðstöðu, öryggishólf og svalir. Á baðherbergi er baðkar og hárþurrka. 

Á hótelinu er veitingastaður þar sem hægt er að fá sér morgunverð með fallegu útsýni. 

Sundlaug hótelsins er staðsett á þaki hússins og þar er einnig hægt að versla snarl og drykki. 

ATH. Rútan hér stoppar örlítið frá og þarf að ganga þrönga götu til að komast að því. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Einfalt borgarhótel rétt hjá strönd