Labranda Rose
Hótellýsing

Hotel Labranda Rose er gott hótel staðsett í rólegu umhverfi og í um það bil 20 mínútna göngufjarlægð frá Jemaa El Fna torginu í miðborg Marrakech.

Umhverfið í kringum hótelið er fallegt, mikill gróður og breiðar götur og margar gönguleiðir, ólíkt hverfinu í miðborginni þar sem þröngar götur og mikill mannfjöldi einkenna það svæði. Þó að umhverfið sé rólegt þá eru kvöldin mjög lífleg og skemmtileg.

Á hótelinu eru rúmlega 200 herbergi, öll með góðum svölum eða verönd og vel búin helstu þægindum.

Hér eru þrír veitingastaðir sem bjóða upp á fjölbreytta matseðla. Einn alþjóðlegur, einn marokkóskur og sá þriðji er með fjölbreyttan evrópskan mat. Þá eru þrír barir á hótelinu. Einnig er þar líkamsrækt ásamt heilsurækt með sauna og tyrknesku baði. Hér er hægt er að velja um að vera með morgunverð eða í hálfu fæði. 

Hér er góð upphituð sundlaug og góður garður. Á hótelinu er barnaklúbbur fyrir 4-8 ára. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Gott vel staðsett hótel í rólegu umhverfi