Labranda Targa Club Aqua Park
Hótellýsing

Hér er um að ræða nýtískulegt hótel, staðsett í einu af nýjustu íbúðarhverfum Marrakech. Hótelið er í um 7 kílómetra fjarlægð frá miðbæ Marrakech. 

Hér eru 239 herbergi og svítur í björtu og fallegu umhverfi. Öll herbergin eru hönnuð í jarðlitum og búin loftkælingu, litlum ísskáp, öryggishólfi, sjónvarpi og á baðherbergi er hárþurrka og sturta. 

Á hótelinu er að finna hlaðborðsveitingastað með alþjóðlegum réttum og einn „A la carte“ veitingastað með innlendum réttum. Þá er hér einnig þrír barir, þar af einn við sundlaugina. Þá er hér einnig falleg heilsulind og líkamsræktaraðstaða. 

Í garðinum eru fjölskyldusvæði með fjórum stórum rennibrautum ásamt vatnsleikjasvæði fyrir börn. Að auki er að finna þrjár aðrar sundlaugar fyrir fullorðna, þar af er ein á rólegra svæði og svo tvær barnalaugar*. Hér er barnaklúbbur og hægt er að stunda ýmsar íþróttir á svæðinu. Allan daginn er að finna skemmtidagskrá fyrir allan aldur*. 

*Athugið að garðurinn er ekki alltaf opinn, það fer eftir árstíðum og veðri hverju sinni. Það á einnig við um skemmtun á hótelinu og barnaklúbbinn.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.