Lagos de Fanabe Beach
Hótellýsing

Hér er um að ræða ágæta íbúðargistingu á Fanabe ströndinni rétt við Costa Adeje svæðið. Gistingin er frábærlega vel staðsett en héðan tekur aðeins tvær mínútur að ganga á ströndina og eru veitingastaðir, kaffihús, barir og verslanir allt í kringum hótelið. 

Hótelið hentar bæði fjölskyldum, pörum og einstaklingum. Hér er allt snyrtilega hannað í byggingu á tveimur hæðum og byggt upp eins og lítið þorp. Móttakan er opin allan sólarhringinn.

Íbúðirnar eru rúmgóðar og hægt er að panta annað hvort silver eða gold íbúðir. Allar íbúðirnar eru búnar lítilli eldunaraðstöðu sem er í aðalrými íbúðanna ásamt stofu, svölum eða verönd, sjónvarpi, kaffivél, viftu og á baðherbergi er ýmist baðkar eða sturta og hárþurrka.

Gold íbúðirnar eru staðsettar á efri hæð hótelsins og hægt er að bóka ýmist standard eða deluxe, en þær eru nýlega uppgerðar. 

Silver íbúðirnar eru staðsettar á jarðhæð og eru uppgerðar. 

Á hótelinu er lítil líkamsræktaraðstaða, snyrtistofa, hlaðborðsveitingastaður, bar og ítalskur „a la carte“ veitingastaður. 

Í garðinum eru tvær stórar sundlaugar, önnur upphituð allt árið, sólbaðsaðstaða og sundlaugarbar.

Hótelið er með einkaströnd með sólbekkjum og sólhlífum sem panta þarf sérstaklega við komu fyrir hvern dag. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.