Los Olivos Beach Resort
Hótellýsing

Los Olivos Beach Resort er gott hótel, skemmtilega staðsett við Fañabe ströndina þar sem stutt er í alla þjónustu. Frá sundlaugarsvæðinu er einstakt útsýni yfir ströndina og næsta nágrenni og þá hafa gestir hótelsins afmarkað svæði á ströndinni einungis ætlað þeim.

Íbúðirnar eru nútímalega innréttaðar og hafa flestar nýlega verið endurnýjaðar. Góð aðstaða er í öllum vistaverum. Ýmsar tegundir íbúða standa til boða:

Junior Svítan er rúmgóð stúdíóíbúð með loftkælingu, eldhúsaðstöðu, sófa og rúmi í opnu rými. 

Íbúð með einu svefnherbergi Silver+ Góðar íbúðir sem staðsettar eru á jarðhæð með verönd. Þær eru búnar öryggishólfi og viftu, með eldhúsaðstöðu, stofu með svefnsófa og einu svefnherbergi. Ath. Þessar íbúðir eru ekki loftkældar.

Íbúð með einu svefnherbergi Gold+ Góðar íbúðir sem staðsettar eru á efri hæðum hótelsins með verönd. Íbúðirnar eru loftkældar, með öryggishólfi, eldhúsaðstöðu, stofu með svefnsófa og einu svefnherbergi. Þessar íbúðir eru með aðgangi að sólbaðsaðstöðu á sérverönd.

Íbúð með tveimur svefnherbergjum Duplex Gold Góðar íbúðir með loftkælingu og útsýni yfir hafið. Íbúðirnar eru með öryggishólfi, eldhúsaðstöðu, stofu og tveimur svefnherbergjum. Hér eru tvö baðherbergi og á sólbaðsverönd má finna Bali rúm. Ath. Þessar íbúðir er einnig hægt að bóka með sér sundlaug.

Á hótelinu er einn hlaðborðsveitingastaður, tveir sundlaugarbarir, einn kokteilabar og einn „a la carte“ veitingastaður. Þá er einnig líkamsræktaraðstaða, stór sundlaug og barnalaug, báðar upphitaðar á veturna.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu gegn gjaldi, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.