Maleme Mare
Hótellýsing
Maleme Mare er mjög gott og fjölskylduvænt íbúðarhótel við steinvöluströndina í Maleme. Á þessu hóteli er mikið lagt upp úr gæðum og góðri þjónustu og er hótelið með eigin ræktun á grænmeti, jurtum og ólífum fyrir ólífuolíu sem notað er í matseldina fyrir gestina á hótelinu. Allt annað hráefni kemur beint frá býli frá bændum í næsta nágrenni. Maleme er mjög rólegt og huggulegt svæði og tilvalið til þess að slaka vel á í fallegri náttúrunni. Hótelið er með rúmgóðar íbúðir sem eru stílhreinar og snyrtilegar en hægt er að velja um stúdíóíbúðir eða íbúðir með einu svefnherbergi. Allar eru íbúðirnar með svölum eða verönd og þær snúa ýmist að sjó, út í garð eða upp að Hvítufjöllunum. Í íbúðunum er kæliskápur, eldunaraðstaða og áhöld, loftkæling (gegn gjaldi), öryggishólf (gegn gjaldi) og á baðherbergi er hárþurrka. Á þessu hóteli er aðgengi fyrir hjólastóla gott en sérpanta þarf íbúðirnar. Vinsamlegast fáið upplýsingar um það hjá ferðaráðgjöfum Heimsferða. Hér er góð sameiginleg aðstaða og hótelgarður með tveimur sundlaugum, lítilli barnasundlaug og leiksvæði fyrir börn. Vel er hugað að úrvali í mat fyrir börn í matsalnum. Eiginleg skemmtidagskrá fyrir börn er ekki í boði nema einu sinni í viku. Maleme er rólegt og afslappað svæði og kjörið til þess að slaka vel á og njóta náttúrunnar. Næsta verslun er í einungis 150 m fjarlægð frá þessu þægilega hóteli en annars er ekki mikið um verslanir á þessu svæði. Í um 500 m fjarlægð er aðalgatan þar sem hægt er að taka strætisvagna t.d. inn til hins líflega strandbæjar Platanias sem er í um 5 km fjarlægð eða til Chania sem er í um 17 km fjarlægð.