Marconfort Griego Hotel
Hótellýsing

Hótel Maconfort Griego er nýlega endurnýjað hótel sem staðsett er í um 1 km fjarlægð frá Bajondillo ströndinni.

Herbergin eru nútímalega innréttuð og eru öll búin helstu þægindum. Þar má finna loftkælingu, sjónvarp, öryggishólf (gegn gjaldi) og lítinn ísskáp. Hárþurrka er á baðherbergi ásamt baðkari með sturtu. Svalir eða verönd með útihúsgögnum fylgja öllum herbergjum. Hér er hægt að fá herbergi sem rúma hámark fjóra aðila (tvo fullorðna og tvö börn eða þrjá fullorðna og eitt barn). Í boði er að fá barnarúm og barnastól inn á herbergi, en það er háð framboði.

Mikið líf og fjör einkennir þetta hótel og er mikil afþreying í boðið bæði fyrir börn og fullorðna. Boðið er upp á ýmsa leiki yfir daginn, sýnikennslu í paellugerð, listasmiðjur og vatnafjör í sundlauginni. Kvöldskemmtanir eru í boði öll kvöld með lifandi tónlist, dansi og sýningum af ýmsu tagi.

Hér er hlaðborðsveitingastaður sem sérhæfir sig í matseld Miðjarðarhafsins. Þar er morgunverðar- hádegis- og kvöldverðarhlaðborð framreitt alla daga. Að auki er hægt að panta snarl og ýmsa rétti á sundlaugarbarnum, snarlbarnum eða veitingastaðnum La Gioconda. Nokkra bari má einnig finna á hótelinu.

Garðurinn er ekki ýkja stór en þar má finna góða sundlaug og eru sólbekkir til afnota fyrir hótelgesti. Leiksvæði fyrir börn er einnig í garðinum. Að auki er hægt að stunda ýmsa afþreyingu, t.d. spila borðtennis, pílukast eða fara í jóga svo fátt eitt sé nefnt. Á sundlaugarbarnum er svo hægt að fá svalandi kokteila og aðra drykki.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Líf og fjör á þessu hóteli og hér ætti engum að leiðast!