Marina Sands
Hótellýsing

Marina Sands er einfalt og snyrtilegt hótel með fínum sundlaugargarði sem hægt er að ganga úr beint niður á ströndina í Agia Marina strandbænum. Hótelið stendur á rólegu svæði við aðalgötuna en ekki er langt að sækja í verslanir og veitingastaði og er miðkjarni Platanias strandbæjarins í um 1 km fjarlægð frá hótelinu. 

 

Hótelið er ekki nýlegt en það er snyrtilegt og eru herbergin innréttuð á einfaldan máta. Í öllum herbergjunum er að finna loftkælingu (gegn gjaldi), öryggishólf (gegn gjaldi), sjónvarp, lítinn kæliskáp og hárþurrku á baðherbergi. Einnig eru þau öll með svölum eða verönd og morgunverður er innifalinn í verði. 

 

Sundlaugargarðurinn er lítill og notalegur með góðri sundlaug, barnalaug, sólbekkjum og litlum sundlaugarbar. Gengið er beint úr sundlaugargarðinum niður á ströndina þar sem er einnig að finna sólbekki og sólhlífar. Í stuttu göngufæri eftir strandlengjunni er að finna stað þar sem hægt er að stunda mismunandi vatnaíþróttir. Við aðalgötuna er að finna strætisvagnastöð þar sem hægt er að taka strætisvagna inn í miðbæ Chania sem er í um 10 km fjarlægð. Einnig ganga þaðan vagnar inn í strandbæinn Platanias sem og aðra nálæga strandbæi. 

 

Marina Sands er einfalt hótel sem veitir litla þjónustu en staðsetning hótelsins er góð