Matzi Apartments
Hótellýsing

 

30 metrar á ströndina !

Matzi Apartments er mjög einfalt 2 stjörnu íbúðarhótel sem er vel staðsett við hliðina á ströndinni. Það er staðsett á rólegu svæði sem heitir Gerani og er með sinn eigin litla smábæ. Chania er ca 15 km frá og strætó gengur reglulega og stoppar rétt hjá hótelinu. 

Heimsferðir bjóða hér farþegum sínum ýmist stúdíó íbúðir  fyrir allt að tveimur fullorðnum eða íbúð með 2 svefnherbergjum sem rúmar allt að fjóra fullorðna og eru allir gistivalkostir með sjávarútsýni. 

Sundlaugargarðurinn er með stórri verönd allan hringinn og með sundlaug, sólbekkjum og rólegu umhverfi. Gengið er beint úr sundlaugargarðinum niður á ströndina þar sem er einnig að finna sólbekki og sólhlífar.

Matzi er einföld íbúðagisting sem veitir litla þjónustu en nálægt ströndinni og hentar þeim sem vilja rólegra umhverfi. Það er móttaka opin allan sólarhringinn og hægt að leigja öryggishólf gegn gjaldi 2 € á dag. Hægt er að leigja loftkælingu á 9€ per dag. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.