Medplaya Alba Beach
Hótellýsing

Hótel Medplaya Alba Beach er mjög vel staðsett hótel í Benalmádena, steinsnar frá ströndinni. Veitingastaði, bari og verslanir má finna í nágrenninu en snekkjubátahöfnin Puerto Marina er einnig í göngufæri. Þetta hótel hentar hvort tveggja fjölskyldum sem og pörum einkar vel.

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn og er t.a.m. hægt að leigja sér bílaleigubíl.

Hótelið er með 210 herbergi á sjö hæðum. Þau eru öll nútímalega innréttuð, vel búin og þrifin daglega. Í þeim öllum er loftkæling, sjónvarp, öryggishólf (gegn gjaldi), sími og fullbúið baðherbergi með snyrtivörum og hárþurrku. Svalir eða verönd fylgja auk þess öllum herbergjum. Hægt er að fá barnarúm leigt fyrir ungabörn gegn 5 evru gjaldi per dag, en þessi þjónusta er háð framboði hverju sinni. Superior herbergin eru auk þess með ísskáp, kaffi- og te aðstöðu og hafa hliðarsjávarsýn.

Skemmtidagskrá er í boði alla daga yfir sumartímann, jafnt fyrir fullorðna og börn, sem starfsmenn hótelsins sinna af miklum áhuga. Auk þess er hægt að spila tennis, borðtennis og billijard á hótelinu.

Hlaðborðsveitingastaður hótelsins býður upp á svæðisbundna matargerð, ásamt spænskum og alþjóðlegum réttum. Hægt er að vera með hálft fæði eða fullt fæði, en athugið að engir drykkir eru innifaldir.

Á hótelinu er auk þess bar og kaffitería.

Tvær sundlaugar eru í hótelgarðinum, þar af ein barnalaug. Sólbekki má finna víða um hótelgarðinn og einnig eru borð með sólhlífum þar sem hægt er að skýla sér frá geislum sólarinnar meðan notið er svalandi drykkjar frá sundlaugarbarnum.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Mjög góð staðsetning!