Melia Costa del sol
Hótellýsing

Hótel Melia Costa del Sol er frábærlega vel staðsett hótel alveg við ströndina í Torremolinos. Hér er stutt að fara til að drekkja í sig menningu spánar, skoða staði sem eru á Heimsminjaskrá UNESCO eða njóta þeirra fjölmörgu veitingastaða sem finna má á þessu svæði.

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn og er t.a.m. hægt að leigja sér bílaleigubíl.

Herbergin eru björt og fallega innréttuð. Í þeim öllum er loftkæling, öryggishólf (gegn gjaldi), sjónvarp, ketill og mini-bar. Hárþurrka er á baðherbergjum og baðkar með sturtu í. Svalir eða verönd fylgja auk þess öllum herbergjum. Meliá herbergin eru staðsett á fyrstu til fjórðu hæð hótelsins. Deluxe herbergin eru staðsett á efri hæðum hótelsins.

Á hótelinu er hægt að nálgast ýmsa þjónustu en finna má m.a. hraðbanka. Aðstaða til líkamsræktariðkunar er fyrir hendi og hægt að bóka sig t.a.m. í danstíma. Að auki er heilsulind þar sem hægt er að bóka gegn gjaldi, nudd og eða dekur, sem nærir líkama og sál. Sjónvarpsherbergi er í sameiginlegu rými hótelsins. Kvöldskemmtun eru í boði öll kvöld, sýningar af ýmsum toga, lifandi tónlist og fleira skemmtilegt.

Góðan hlaðborðsveitingastað má finna á hótelinu. Þar er einnig nýtískulegur hótelbar með útsýni yfir sundlaugina, hafið og suðræna veröndina. Á kvöldin er spiluð lifandi tónlist. Hótelið leggur mikið upp úr veitingastað strandklúbbsins að auki.

Stór og flott sundlaug er við hótelið ásamt góðri aðstöðu til sólbaða þar sem sólbekkir og sólhlífar eru til afnota. Í boði er að leigja handklæði gegn gjaldi. Á þaki hótelsins er einnig lítil sundlaug og sólbaðsaðstaða, en það svæði er einungis fyrir 16 ára og eldri. Strandklúbbur tengdur hótelinu er á ströndinni sem býður einnig upp á handklæðaþjónustu. Þar er einnig bar og veitingastaður sem framreiðir fágaða þjóðlega rétti sem og smárétti ásamt drykkjum. Sólbekkir og Bali rúm standa hótelgestum einnig til boða.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Fallegt hótel alveg við ströndina!