Hér er um að ræða einfalt hótel á mjög góðu svæði
Hótelið er staðsett í miðbæ Marbella við hlið Alameda Park. Í göngufæri er svo smábátahöfnin og Venus ströndin. Einnig er örstuttur gangur í gamla bæinn í Marbella.
Einfaldur en góður gistivalkostur og hentar vel fyrir pör eða par með ungabarn.
Herbergin eru einföld, öll með loftkælingu, sjónvarpi, mini-bar, öryggishólfi og svölum.
Á hótelinu er sundlaug á efstu hæð byggingarinnar sem og sólbekkir. Einnig er hér hlaðborðsveitingastaður.
Gestir hótelsins fá sérstök tilboð á golfvöllum í kring.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.