Vel staðsett hótel í Fuengirola
Hótelið er staðsett í göngufæri við Las Gaviotas ströndina.
Herbergin eru innréttuð í einföldum en fallegum stíl. Á herbergjum er loftkæling, svalir, mini-bar, sjónvarp og öryggishólf (gegn gjaldi).
Á hótelinu er heilsulind, bar, sundlaug og sundlaugarbar, hlaðborðsveitingastaður, tennisvöllur og skemmtidagskrá fyrir börnin.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.