Rólegt, nýuppgert (2020) hótel
Hér er um að ræða hótel vel staðsett í Fuengirola en það er í göngufæri við Paseo Marítimo, sem er aðal göngugatan þar. Stutt er í alla þjónustu og næstu lestarstöð.
Herbergin eru snyrtileg, öll með loftkælingu, svölum, sjónvarpi, mini-bar og öryggishólfi.
Á hótelinu er kaffihús, sundlaug og sundlaugarbar, hlaðborðsveitingastaður og skemmtidagskrá fyrir allan aldur.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.