Myrion Beach Resort & SPA er nýtt 5 stjörnu hótel staðsett nálægt Garani ströndinni. Hótelið er aðeins fyrir 16 ára og eldri. Hótelið er staðsett í notalegu umhverfi en nokkrir veitingastaðir og önnur þjónusta er í næsta nágrenni. Chania er í 16 km fjarlægð.
Herbergin eru innréttuð í nútímalegum stíl og vel búin helstu þægindum. Sófi eða setustofa á herbergjum ásamt sjónvarpi, síma, öryggishólfi, ísskáp og kaffivél. Handklæði fyrir sundlaugina á öllum herbergjum ásamt sloppi og inniskóm. Hárþurrka á baðherbergjum. Öll herbergi eru með svölum eða verönd. Hægt er að velja mismunandi tegundir af herbergjum m.a. með útsýni út yfir hafið, junior svítur, eða herbergi á tveimur hæðum. Fæðisval er morgunverður eða hálft fæði.
Hótelið er innréttað í nútímalegum stíl og einstaklega smekklegt. Mjög góður garður og nóg pláss fyrir þá sem vilja dvelja í garðinum. Öll sameiginleg aðstaða er góð en á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður ásamt a la carte veitingahúsi og snarlbar við sundlaugina. Glæsileg heilsulind sem býður fjölbreytta þjónustu eins og fegrunar- og nuddmeðferðir. Innisundlaug og sauna ásamt tyrknesku baði. Handklæðaþjónusta við útisundlaug.
Glæsilegt nýtt hótel innréttað í nútímalegum stíl og fékk hótelið umhverfisviðurkenninguna Græni lykilinn 2024. Staðsett í rólegu umhverfi.