Occidental Fuengirola
Hótellýsing

Vel staðsett hótel, alveg við sjávarsíðuna og í stuttu göngufæri við miðbæ Fuengirola en þar er að finna fjöldann allan af veitingastöðum, börum og verslunum. 

Hótelið hefur nýlega verið uppgert og er hluti af vinsælu Barceló keðjunni. 

Hér eru 316 herbergi, öll fallega innréttuð með ljósum litum. Herbergin eru ágætlega rúmgóð og öll með svölum. Öll eru búin mini-bar (gegn gjaldi), síma, loftkælingu, sjónvarpi, öryggishólfi (gegn gjaldi) og á baðherbergi er sturta og hárþurrka. 

Junior svítan er stærri en venjuleg tvíbýli og hefur að auki svefnsófa í lítilli setustofu. 

Á hótelinu er veitingastaðurinn Arrozante (e. The home of rice), bar, snarl-bar og hlaðborðsveitingastaður. Þá er hér einnig líkamsræktaraðstaða.

Í garðinum eru tvær sundlaugar, ein sem er opin á sumrin og ein sem er upphituð og er opin á veturna. Í garðinum eru sólbekkir og sólhlífar. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.