Obal Urban Hotel
Hótellýsing

Hér er um að ræða vel staðsett hótel í Marbella. Hótelið er í 200 metra göngufæri við ströndina og er nýlega uppgert. 

Á hótelinu eru 110 herbergi, björt og fallega innréttuð í nútímalegum stíl. Herbergin eru búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, skrifborði, sjónvarpi, mini-bar (gegn gjaldi), hitakatli, síma og öryggishólfi. Á baðherbergi eru helstu snyrtivörur, hárþurrka, stækkunarspegill og sturta. 

Hér er að finna veitingastaðinn Alameda en þar er morgunverðarhlaðborðið borið fram sem og hægt að versla af matseðli yfir daginn. Veitingastaðnum fylgir fallegt setusvæði. Á hótelinu er einnig heilsulind og líkamsræktaraðstaða. 

Þá er hér einnig að finna 360 Blue Sky sem er nýtt svæði á þakinu en þar er sundlaug ásamt sólbekkjum og bar. Þaðan er fallegt útsýni yfir gamla bæinn í Marbella. Hér er einnig hægt að versla mat, kokteila og einstaka kvöld er lifandi tónlist. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.